Samstöðutónleikar Verkalýðsfélagsins Hlífar og STH

[vc_row type=”in_container” full_screen_row_position=”middle” column_margin=”default” column_direction=”default” column_direction_tablet=”default” column_direction_phone=”default” scene_position=”center” text_color=”dark” text_align=”left” row_border_radius=”none” row_border_radius_applies=”bg” overflow=”visible” overlay_strength=”0.3″ gradient_direction=”left_to_right” shape_divider_position=”bottom” bg_image_animation=”none”][vc_column column_padding=”no-extra-padding” column_padding_tablet=”inherit” column_padding_phone=”inherit” column_padding_position=”all” column_element_direction_desktop=”default” column_element_spacing=”default” desktop_text_alignment=”default” tablet_text_alignment=”default” phone_text_alignment=”default” background_color_opacity=”1″ background_hover_color_opacity=”1″ column_backdrop_filter=”none” column_shadow=”none” column_border_radius=”none” column_link_target=”_self” column_position=”default” gradient_direction=”left_to_right” overlay_strength=”0.3″ width=”1/1″ tablet_width_inherit=”default” animation_type=”default” bg_image_animation=”none” border_type=”simple” column_border_width=”none” column_border_style=”solid”][vc_column_text css=”” text_direction=”default”]

Samstöðutónleikar Verkalýðsfélagsins Hlífar og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar í Bæjarbíói 1.maí kl: 14:00.

Fram koma:

  • Bríet
  • Diljá
  • Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson

Frítt inn á meðan húsrúm leyfir og veitingar í boði.
Við opnum Bæjarbíó kl 13:30 og hvetjum fólk til að mæta tímanlega því það er viðbúið að húsið fyllist á stuttum tíma.

Sýnum samstöðu og samgleðjumst í Bæjarbíói þann 1. maí!

Viðburður á Facebook[/vc_column_text][/vc_column][/vc_row]

Dýrara þegar upp er staðið

Stjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar fordæmir aðgerðir ræstingarfyrirtækja sem fela í sér skerðingu á kjörum, starfsaaðstæðum og öryggi ræstingafólks sem hjá þeim starfar.

Starfsaðstæður og kjör þess fólks sem sinnir þessum störfum eru með því lakasta sem þekkist á íslenskum vinnumarkaði. Í síðustu kjarasamningum var lögð áhersla á að lyfta launum þessa hóps með sérstakri launahækkun umfram almennar hækkanir. Þessar kjarabætur eru ýmis stór fyrirtæki að hafa af starfsfólki sínu, með bellibrögðum.

Margt bendir til þess, að sá sparnaður sem sveitarfélög og aðrir opinberir aðilar telja sig ná með útvistun þessara verkefna, komi niður á þrifum og ástandi eigna til lengri tíma. Þá eru ótalin þau áhrif sem þetta fyrirkomulag hefur á líf og heilsu starfsfólksins, sem í flestum tilvikum eru láglaunakonur af erlendum uppruna. Það er með öllu óboðlegt að ríki og sveitarfélög afsali sér ábyrgð á þeim verkefnum sem þeim ber að sinna og noti það skattfé sem ætlað er að standa undir kostnaði við þjónustu leikskóla, skóla og annarra opinberra stofnana til hagnaðardrifinna einkafyrirtækja. Þannig búa ríki og sveitarfélög í haginn fyrir misneytingu og félagsleg undirboð.

Ábyrgð ríkis og sveitarfélaga á þeirri stöðu sem upp er komin er rík. Þeim ber að taka hana alvarlega. Í lögum um opinber innkaup kemur fram, að verkkaupa er skylt að tryggja kjarasamningsbundin og félagsleg réttindi. Jafnframt hafa þau heimild til að grípa inn í séu kjarasamningsbundin réttindi fólksins sem vinnur verkin á vegum verksala, ekki tryggð.

Verkalýðsfélagið Hlíf tekur undir með ályktun miðstjórnar ASÍ, þar sem það sinnuleysi sem einkennir framgöngu ráðafólks hjá ríki og sveitarfélögum er fordæmt og vekur athygli á þeirri hróplegu hræsni sem einkennir málflutning þessa fólks um inngildingu og virðingu fyrir störfum annarra. Við krefjumst þess að ef fyrirtækin láta ekki af hegðun sinni grípi sveitafélög og ríki inní með aðgerðum, sem þeim er siðferðilega skylt að gera.

Páskaúthlutun orlofshúsa

Opið er fyrir páskaúthlutun orlofshúsa fyrir árið 2025.

 

  • Umsóknarfrestur er til og með 26. febrúar 2025
  • Vikuleiga, frá miðvikudeginum 16. apríl – miðvikudagsins 23. apríl.
  • Félagsmenn Hlífar geta sótt um á Mínum Síðum Hlífar.

Hlíf stendur heilshugar að baki aðgerðum gegn gervifélögum

[vc_row type=”in_container” full_screen_row_position=”middle” column_margin=”default” column_direction=”default” column_direction_tablet=”default” column_direction_phone=”default” scene_position=”center” text_color=”dark” text_align=”left” row_border_radius=”none” row_border_radius_applies=”bg” overflow=”visible” overlay_strength=”0.3″ gradient_direction=”left_to_right” shape_divider_position=”bottom” bg_image_animation=”none”][vc_column column_padding=”no-extra-padding” column_padding_tablet=”inherit” column_padding_phone=”inherit” column_padding_position=”all” column_element_direction_desktop=”default” column_element_spacing=”default” desktop_text_alignment=”default” tablet_text_alignment=”default” phone_text_alignment=”default” background_color_opacity=”1″ background_hover_color_opacity=”1″ column_backdrop_filter=”none” column_shadow=”none” column_border_radius=”none” column_link_target=”_self” column_position=”default” gradient_direction=”left_to_right” overlay_strength=”0.3″ width=”1/1″ tablet_width_inherit=”default” animation_type=”default” bg_image_animation=”none” border_type=”simple” column_border_width=”none” column_border_style=”solid”][vc_column_text text_direction=”default”]Gerviverkalýðsfélög, svo sem Virðing, eru gagngert stofnuð til þess að grafa undan réttindum og kjörum launafólks. Í krafti yfirburðastöðu sinnar þvinga sumir atvinnurekendur starfsfólk sitt til þess að skrifa undir ráðningarsamninga sem fela í sér skerðingu á þeim kjörum og réttindum sem kveðið er á um í kjarasamningum atvinnurekenda og stéttarfélaga með samningsumboð á viðkomandi sviði.

Stjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar hafnar slíkum aðförum og stendur heilshugar á bakvið aðgerðir Eflingar, Einingar-Iðju og annarra þeirra verkalýðsfélaga sem eiga í baráttu við gul stéttarfélag. Þeirra barátta er í raun barátta verkalýðshreyfingarinnar allrar gegn félagslegum undirboðum og svokölluðum gulum verkalýðsfélögum.[/vc_column_text][/vc_column][/vc_row]

Samningur undirritaður – verkfalli aflýst

[vc_row type=”in_container” full_screen_row_position=”middle” column_margin=”default” column_direction=”default” column_direction_tablet=”default” column_direction_phone=”default” scene_position=”center” text_color=”dark” text_align=”left” row_border_radius=”none” row_border_radius_applies=”bg” overflow=”visible” overlay_strength=”0.3″ gradient_direction=”left_to_right” shape_divider_position=”bottom” bg_image_animation=”none”][vc_column column_padding=”no-extra-padding” column_padding_tablet=”inherit” column_padding_phone=”inherit” column_padding_position=”all” column_element_direction_desktop=”default” column_element_spacing=”default” desktop_text_alignment=”default” tablet_text_alignment=”default” phone_text_alignment=”default” background_color_opacity=”1″ background_hover_color_opacity=”1″ column_backdrop_filter=”none” column_shadow=”none” column_border_radius=”none” column_link_target=”_self” column_position=”default” gradient_direction=”left_to_right” overlay_strength=”0.3″ width=”1/1″ tablet_width_inherit=”default” animation_type=”default” bg_image_animation=”none” border_type=”simple” column_border_width=”none” column_border_style=”solid”][vc_column_text text_direction=”default”]Skrifað hefur verið samkomulag við Hafnarfjarðarkaupstað vegna félaga Hlífar í leikskólum bæjarins og vinnustöðvun, sem hefjast átti næstkomandi fimmtudag hefur verið aflýst.

Félagið telur samninginn vel ásættanlegan og að allflestum samningsmarkmiðum hafi verið náð. Mikilvægasta ákvæðið snýr að tryggingu undirbúningstíma leikskóla- og frístundaliða og stuðningsfulltrúa í leikskólum.

Samningurinn verður kynntur næstu daga. Atkvæðagreiðsla um samninginn hefst um miðja viku.[/vc_column_text][/vc_column][/vc_row]

New site created

Welcome to WordPress. This is your first post for your new 1984 hosted website. Get started now!

Desemberuppbót 2025

Desemberuppbót greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllu starfsfólki sem verið hefur samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum EÐA eru í starfi fyrstu viku í desember.

Orlof greiðist ekki ofan á desemberuppbótina.

Eftir eins árs starf hjá sama atvinnurekanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlorlofs til starfstíma við útreikning desemberuppbótar.

Desemberuppbót á að gera upp við starfslok.

 

Almennur markaður

  • 110.000 kr.

Sveitarfélög

  • 140.000 kr.

Velferðarþjónusta

  • 110.000 kr.

Ríkisstarfsfólk

  • 110.000 kr.

Rio Tinto Alcan

  • 365.069 kr.

 

 

December bonus shall be paid no later than on 15 December based on the employee’s job proportion and length of employment, to all employees who have been in continuous employment for the same employer for 12 weeks over the past 12 months OR who are employed during the first week of December. Vacation pay is not added on the top of the December bonus.

After one year of employment with the same employer, absences due to statutory maternity or paternity leave are counted as part of the employment duration when calculating the December bonus.

December bonus is to be settled upon termination of employment.

 

Private sector (SGS and SA)

  • 110.000 kr.

Municipalities

  • 140.000 kr.

Nursing homes

  • 110.000 kr.

Government

  • 110.000 kr.

Rio Tinto Alcan

  • 365.069 kr.

Eldri borgarar og öryrkjar athugið

[vc_column_text css=”” text_direction=”default”]

Eldri borgarar og öryrkjar athugið

Þeir sem farnir eru af vinnumarkaði vegna aldurs eða örorku og voru félagsmenn í Hlíf fram að þeim tíma greiða hálft helgarleiguverð fyrir leigu frá mánudegi til föstudags yfir vetrartímann.[/vc_column_text]

Skrifstofa lokar 28. nóvember kl. 14:00 í dag vegna veðurs.

Skrifstofa Hlífar lokar kl. 14:00 þriðjudaginn 28. október, vegna veðurs.

Orlofshús Hlífar yfir jól og áramót 2025

Opið verður fyrir umsóknir vegna leigu á orlofshúsum yfir jól og áramót frá 15. – 29. október 2025.

 

Leigutímabil yfir jól og áramót 2025

  • Jól
    22. desember – 29. desember
  • Áramót
    29. desember – 5. janúar

Félagsfólk Hlífar getur sótt um á mínum síðum Hlífar.

Skert starfsemi skrifstofu 8.-10. október

Dagana 8.-10. október verður skert starfsemi skrifstofu vegna þings Starfsgreinasambands Íslands.

Veiðikortið & Útilegukortið fæst á skrifstofu Hlífar

Bæði Veiði- og Útilegukortið er nú fáanlegt fyrir félagsmenn á skrifstofu Hlífar,  Reykjarvíkurvegi 64, Hafnarfirði.

Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í 37 veiðivötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra.

Útilegukortið býður upp á fjölmörg tjaldsvæði víða um allt land.

Verð fyrir félagsmenn Hlífar:

  • Veiðikortið, 5.500 kr.
  • Útilegukortið, 15.000 kr.

Veiðikortið & Útilegukortið fæst á skrifstou Hlífar

[vc_row type=”in_container” full_screen_row_position=”middle” column_margin=”default” column_direction=”default” column_direction_tablet=”default” column_direction_phone=”default” scene_position=”center” text_color=”dark” text_align=”left” row_border_radius=”none” row_border_radius_applies=”bg” overflow=”visible” overlay_strength=”0.3″ gradient_direction=”left_to_right” shape_divider_position=”bottom” bg_image_animation=”none”][vc_column column_padding=”no-extra-padding” column_padding_tablet=”inherit” column_padding_phone=”inherit” column_padding_position=”all” column_element_direction_desktop=”default” column_element_spacing=”default” desktop_text_alignment=”default” tablet_text_alignment=”default” phone_text_alignment=”default” background_color_opacity=”1″ background_hover_color_opacity=”1″ column_backdrop_filter=”none” column_shadow=”none” column_border_radius=”none” column_link_target=”_self” column_position=”default” gradient_direction=”left_to_right” overlay_strength=”0.3″ width=”1/1″ tablet_width_inherit=”default” animation_type=”default” bg_image_animation=”none” border_type=”simple” column_border_width=”none” column_border_style=”solid”][vc_column_text css=”” text_direction=”default”]Bæði Veiði- og Útilegukortið er fáanlegt fyrir félagsmenn á skrifstofu Hlífar,  Reykjarvíkurvegur 64.

Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í 37 veiðivötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra.

Útilegukortið býður upp á fjölmörg tjaldsvæði víða um allt land.

Verð fyrir félagsmenn:

  • Veiðikortið
    5.500 kr.
  • Útilegukortið
    15.000 kr.

[/vc_column_text][/vc_column][/vc_row]

Breytingar á stjórn og Valborg útnefnd heiðursfélagi

[su_custom_gallery source=”media: 61124,61125,61123″ link=”lightbox” title=”never” width=”120″ height=”120″]

Breytingar á stjórn og Valborg útnefnd heiðursfélagi

Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Hlífar var haldinn í gær. Á fundinum var ársreikningur fyrir árið 2024 afgreiddur, auk þess sem breytingar urðu á stjórn.

Rekstur félagsins gekk afar vel á árinu. Í ársreikningi kemur m.a. fram, að rekstrarafgangur ársins 2024 hafi numið 257 milljónum króna. Eigið fé félagsins er 2.384 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 94%. Engar langtímaskuldir eru hjá félaginu. Eignir félagsins eru 2.545 milljónir króna.

Iðgjöld ársins numu tæpum 700 milljónum króna, samanborið við 613 milljónir árið áður. Rekstrargjöld voru 660 milljónir, samanborið við 530 milljónir árið 2023. Munar þar mestu um umtalsverða aukningu útgjalda sjúkrasjóðs, einkum vegna sjúkradagpeninga.

 

Breytingar á stjórn

Í janúar voru greidd atkvæði samkvæmt B-lið laga, þ.e. varaformaður, tveir meðstjórnendur og þrír varamenn. Gundega Jaunlinina var endurkjörin varaformaður til tveggja ára. Meðstjórnendur voru kjörin Sigríður Þorleifsdóttir og Guðmundur Þorleifsson. Varamenn í stjórn voru kjörin Krystian Sipowicz, Berþóra Þorsteinsdóttir og Pétur Ólafsson. Bergþóra og Pétur eru ný. Úr stjórn gekk Aðalsteinn Einar Stefánsson. Honum eru þökkuð góð störf.

 

Valborg útnefnd heiðursfélagi

Valborg Óskarsdóttir, sem flestir þeir sem hafa átt erindi við skrifstofu félagsins undanfarna áratugi þekkja af góðu, lét af störfum hjá félaginu um síðastliðin mánaðamót. Stjórn félagsins ákvað einróma að gera Valborgu að heiðursfélaga. Valborg hóf störf hjá félaginu árið 1. september 1995. Hinn heiðursfélaginn, Kolbeinn Gunnarsson fyrrum formaður, hóf störf 2. maí sama ár.

Í ávarpi sem formaður félagsins, Eyþór Þ. Árnason, flutti á fundinum, sagði hann meðal annars:

Eftir nokkrar vikur eru 30 ár frá því að Valborg hóf fyrst störf fyrir félagið. Á þeim tíma hefur félagið tekið stórfelldum breytingum. Allan þennan tíma hefur Valborg staðið vaktina, tekið að sér ný verkefni eftir þörfum, tileinkað sér ný vinnubrögð og nýja tækni.

Næstum allan þennan tíma hefur hún verið andlit félagsins gagnvart þeim sem hafa þurft að leita til þess, sækja um styrki, fá orlofshús, eða sækja aðra þá fyrirgreiðslu sem félagið hefur veitt á hverjum tíma.

Ég held að ég geti leyft mér að fullyrða, að enginn hefur haft bein, persónuleg samskipti við fleiri félagsmenn en Valborg. Ég ætla líka að leyfa mér að fullyrða að aldrei hefur einn einasti félagsmaður kvartað undan viðtökunum. Valborg hefur alltaf lagt sig fram um að leysa hvers manns vanda.

Auk þess að vera útnefnd heiðursfélagi, var Valborg sæmd gullmerki félagsins. Verkalýðsfélagið Hlíf og félagsmenn þess standa í þakkarskuld við Valborgu og óska henni velfarnaðar í hverju því sem hún tekur sér fyrir hendur.

Aðalfundur

Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Hlífar verður haldinn fimmtudaginn 5. júní 2025, kl. 17:00.

Fundurinn verður haldinn í Hraunseli, félagsheimili eldri borgara, Flatahrauni 3.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.

 

Dagskrá:

1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.

2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu.

3. Lýst kjöri stjórnar og varastjórnar félagsins og félagslegra skoðunarmanna ásamt stjórnum og varastjórnum sjúkrasjóðs og orlofsheimilasjóðs.

4. Kosning 2ja manna í kjörstjórn og tveggja til vara.

5. Önnur mál.

 

Stjórnin

Símanúmer
5100800
Netfang
hilf@hilf.is
Fylgstu með okkur
Facebook
Mínar síður